|
|
31.05.2006 18:15:56 / kollz
www.kolla-jons.bloggar.is
er komin þangað.. endilega breyttu
um síðu og skoðaðu hina sí vinsælu www.kolla-jons.bloggar.is
..svaka stuð og endalaus hamingja
=)
kveðja, KollA\\\\
»
31.05.2006 10:57:16 / kollz
Í gær...
...þá fór ég út með Kobba (þjálfari hjá KR) og við fórum eitthvað á
rúntinn og pikkuðum Bjögga upp.. við vorum eitthvað að keyra bara
um hverfin.. og svo varð Kobbi svo rosalega stoltur af þessum
brjálaðslegu flottu svölum sem að hann setti upp í vinnunni að við
fórum að kíkja á þetta.. eða hann vildi að Bjöggi myndi sjá hans
listaverk (allar skakkar.. ég ætla ekki að flytja þangað
allavegana) ..
svo rann upp sú örlagaríka stund að það PUNKTERAÐI á andsk*****
bílnum..
svo kom að því að það þurfti að skipta um dekk..
eftirfarandi hlutverk: skipta um dekk, tjakka bílinn upp, PASSA
rærnar, taka rænar af, já og svo var eitthlutverk í viðbót: standa
með vettlingana MÍNA og öskra: Kollu í landsliðið.. eftirfarandi
tóku verkið að sér: Kobbi
Bjöggi var góður í það að losa 3 rær af an ekki meir.. svo stóðu
þeir bara og létu mig um verkið .. eða reyndar..Kobbi tók eitt
hlutverk að sér í viðbót: PASSA rærnar!! Og hann gat það
varla..
en jæja.. verkið kláraðist meðan bílarnir keyrðu framhjá og sáu að
kvenmaðurinn væri að gera þetta og þeir alltaf að beygja sig þegar
að þeir keyrðu framhjá því að þeir vildu láta þetta líta vel út..
maður var komin með sót á hendurnar svona eins og
vinnukallarnir...
það sem gerði kvöldið svo skemmtilegt var brandarahorn
Bjögga...
HVAÐ ÞARF MARGA KOBBA TIL AÐ SKIPTA UM DEKK Á BÍL?? ég
ætla að biðja ykkur um að svara þessari spurningu...
..en til að draga þá stráka ekki alveg niður í helvíti þá eru
þetta æðislegir strákar.. er að fara að vinna með Kobba í vetur og
Bjöggi er
snillingur..
en ég er komin með aðra síðu einnig.. www.kolla-jons.bloggar.is
kíktu á það
en jæja..eg ætla að fara í sturtu .. bæjó..
kveðja,
KollA\\
»
30.05.2006 09:59:28 / kollz
nú hef ég
sko fréttir að færa ..
í gær þá:
-fór ég eftir vinnu í Hýrumel, til Margrétar vinkonu og fékk þar
smávegis í gogginn..
-svo... fór ég í SVÍNAHÚS!! Og ég hélt á SVÍNI!! Ojj.. og sko það
var svo fyndið .. ég dó næstum því !!
-svo fór ég á trampólínið .. og gerði smá mistök.. þar sem ég var
að sýna mig fyrir systur Margrétar og vinkonu hennar.. þá var ég í
soldið þröngum buxum og var að sýna hvernig markmenn gera (sem er
btw. Ég..) þá REIIIIF! Ég buxurnar mínar feitast!!!
RIIIIISSSSSAAAAA stórt GAT!!
í dag þá:
-lagði ég af stað í bæinn um hálf fimm eða svo .. og ók heim..
-þar beið mín, litla æðislega frænka mín hún Lydía Líf..
-eftir smá skerf af brölti með hana þá fékk ég ÆÆÆLUUUNNNAAA framan
í mig og í augað.. EKKI gaman!! Ég hoppaði í bað .. og þar sem
maður er NAKIN í baði þá var þetta soldið svona óþægilegt því að
það komu bara ALLIR inn í baðherbergið.. prety not very beautiful
sjón!
-svo er það bara búið að vera slökun slökun og aftur slökun.. ég
læt í mér heyra eftir kannski nokkra áhugaverða daga.. gaman að
geta miðlað svona fallegri reynslu með ykkur ..
(bTw..þetta blogg var skrifað í gær.. en komst ekki á netið vegna
bilana)
over and out.. heyrumst.. bæjó..
KollA\\
»
24.05.2006 20:55:58 / kollz
*~°Góður dagur ..
-vaknaði klukkan 08:00 en fattaði að ég þurfti ekki að fara með
Tómas á leikskólann..
-fór heim um níu þegar að Dísa var komin heim og fór og kláraði að
finna mig til fyrir Reykholtsferð mína..
Um klukkan 10:30 fór ég og lagði af stað og fór í eitthvað smá
stússerí
-fór með
gömul og of lítil föt frá mér í Rauða Krossinn eða hvað sem
þetta heitir nú þarna í Sorpu
-svo fór ég í apótekið að kaupa vítamín fyrir mig.. því að ég fer
svo mikið úr hárum að þetta er farið að vera hættulegt..
-svo var bara brunað út úr bænum.. eða ekki brunað mikið lengi ..
ég keyrði fyrst fram hjá VÖRUBÍL sem hafði oltið á leið sinni að
vestan og í bæinn..sko VÖRUBÍL með TENGIVAGN! Ekkert stuttann
heldur.. ! en svo leið ekki á löngu fyrr en að ég var að koma að
Hvalfjarðargöngunum og ég sjá bara röööööððð!! Af bílum...þá hafði
einhver klesst á í göngunum .. og það þurfti að kalla út sjúkrabíl,
löggubíl og kranabíl og eitthvað .. þannig að þarna biðum við
farþegarnir í svona 30-45 mín. Og sáum FULLT af fólki keyra bara
heim aftur.. en svo var hliðið loks opnað aftur og lá mín leið bara
í Reykholtið .. voða fínn staður.. er með herbergi heima hjá
hótelstýrunni, voða fín kona..
En ég ætla ekki að hafa þetta mikið lengra núna.. bíðið bara þar
til næst 
kveðja KollA\\
»
21.05.2006 23:43:41 / kollz
*~°HaHaHa! Ég
veit ekki alveg hvar ég á að byrja.. en einhvers staðar
verður það að vera..
á föstudeginum fór ég í smá “óvissuferð” með stelpunum sem ég er að
þjálfa.. eða var að þjálfa.. þetta var því svona eiginlega
kveðjustund fyrir okkur.. en þar sem ég vonast alveg rosalega mikið eftir að fá
þjálfarastöðu hjá KR þá eigum við nú alveg eftir hittast ...
En þá er komið að bústaðnum..
Ég var sótt af Óla og Árdísi frænku í Lækjarbotna þar sem ég var í
þessari “óvissuferð” og brunað svo beint í Miðhúsaskóg 11 og 14..
vá það var æðislegt að hitta fólkið eftir þennann tíma.. og þá er
ekki bara átt við skólastelpurnar.. heldur allann vinahópinn fyrir
utan Írisi Kolbrúnu og bumbubúann ónefnda og svo voru líka
strákarnir: Kalli gráhærði, Aron a.k.a. Dr. Phill, Tobbi –in the
middle of EVERY thing (þið skiljið sem voruð á sunnudeginum í
fótboltanum) Elli –botninn UPP! Og Freyr boyfriend of Sandra bjútí
og svo var fullt af fólki á föstudeginum fékk maður góðar
móttökur frá fólkinu í pottinum og þeim sem ekki voru í pottinum..
Ekkert drakk ég á föstudeginum enda ekkert áfengi til þess, en fólk
drukkið og ódrukkið lét slag standa og við fórum í fótbolta,
stelpur á móti strákum.. og hver VANN!?! Auðvitað stelpurnar..
en ekki hvað..?
um klukkan hálf fjögur-fjögur skreið ég upp í rúm og fór að lúlla
mér í litla kollinn minn .. eitthvað gerðist í millitíðinni sem
varð til þess að ég vaknaði í sófanum. Með sængina hans Kalla og í
plássinu hans Arons.. Greyið Dr. Phill.. allt tekið af honum ..
Kalli tók svefnplássið hans Arons og ég tók svefnstað númer TvÖ ..
vá gEðVeIkT gráÐuG! Greinilegt að ég kann mig ekki í kringum
fólk .. Kolbrún Jónsdóttir þú þarft aðeins að fara að athuga þína
framkomu í fjölmenni!! En jæja.. áfram með
smjörið á
laugardeginum var bara slappað af.. sumir fóru á Geysi og
aðrir á selfoss eða laugarvatn.. við hin vorum
bara í bústaðnum
að slappa af.. um klukkan 18:00 að staðartíma var ákveðið að
kveikja í grillinu, þar var Stína aðalkokkur og ég
aðstoðarkokkur (eða sko ég tignaði mig sjálf ) maturinn
var dýrindislegur.. alveg upp á 10!! Eurovision var svo næst
á dagskrá fólk snæddi kvöldverð, hvort sem það var
hamborgari, pylsa með osti eða high class steik með;
kartöflum, grilluðum sveppum með hvítlauk innan í og
bernésósu og svo dýrindislegt jarðaberjafreyðivín OG
eftirrétt sem mun hafa verið grillaður banani með
súkkulaði... þá var borðað með góðri lyst og allir voða
ánægðir.. gaman var að sjá Finnana taka keppnina í sínar
hendur og rústa henni .. en já.. um 23:00 kom svo hann
Daníel, 9 ára strákur sem var umsjónarmaður með ömmu sinni í
Miðhúsaskógi, rosalega indæll strákur, en við ræddum og
snæddum snakk og drukkum gos.. Ég, Stína og Jóhanna röltum
svo með honum til að skila litla beibíinu heim til sín í góðu
og lenntum svo í bara í spjalli inni í stofu hjá
umsjónarmanninum í heilann klukkutíma.. ákváðum svo efitir
tæpann/rúmlegann klukkutíma (get ekki alveg komið því fyrir
mér hvenær við komum og fórum en þetta er svona næstum því
áræðanlegt) svo stungum við okkur í pottinn og farið var í
SpK .. bara SK reyndar.. margt kom þar í ljós og margar
tungubrodda snertingar sem var bara fyndið .. svo var bara
allt mjög rólegt framm eftir kvöldinu ..
mMm.. kósí sunnudagur.. bara svona mjög rólegur og góður.. Aron
“mamma”-“Dr. Phill” tók til í sínum bústað án hjálpar.. neitaði
meira að segja fólki að láta hjálpa sér við þrifin.. hann er
æðibiti .. svo var góður fótbolti.. (halda uppi bolti) með ca. 8
manns í einu ... og þar kemur nafnið hans Tobba til sögu .. hann
var gjörsamlega út um allt.. og hann lennti við hliðiná mér í
þessum hring okkar sem við stóðum í og ég held að ég hafi fengið
svona 5 sendingar sem ég klúðraði eilega alltaf því að Tobbi hafði
truflandi áhrif.. en þetta var fínt.. Stína þurfti svo að
keyra bíl Ingunnar því að hún var komin hátt í 7 bjór um klukkan
fjögur og fékk ég að fljóta með Aroni og Kalla sem var mjög fínt
bara.. rætt var um bíla.. og hvað mazdan hans Arons var alveg
toppbíll.. og svo var rætt um tónlist.. einhverja tónlistarkalla..
sem ég veit ekkert um .. ! ekki mín sérgrein.. þegar komið var að
Hveragerðisafleggjaranum þá var beygt til hægri og stoppað í Eden
... mmm fengum okkur Kjörís sem var frábært langt síðan að maður
hefur gert svoleiðis..
HeHeHe....svona eiga sumarbústaðaferðir að vera..!!
toppferðir.. ps...þetta er
góð umsögn og kannski ekki alveg áræðanleg.. en svona hún er
85% sönn.. kaupið bara hitt og verið sátt 
Ég vil bara þakka öllu fólkinu fyrir
frábæra helgi og ánægjulega samverustund .. einnig fólkinu í
bústað 10 
kveðja..
KollZ
»
13.05.2006 19:40:07 / kollz
*~°Mér
finnst stundum að þegar að fólk segji eitthvað við mig núna
undanfarið þá er aldrei staðið við það eða svo .. eða þar að
segja allt er bara ekki að ganga hjá mér akkúrat núna!
-í fyrstalagi .. : Ég kom í vinnuna um daginn og þá var
vinnuveitandinn akkúrat þar.. svo segir hún: já ert þú ekki að fara
að vinna í sveitinni .. þannig að ég setti þig bara ekki á neina
vakt í Maí eða neina í sumar fyrst að þú ert að fara þarna í
sveitinni.. ég var ekki einu sinni búin að fá vinnuna þar..! en
þegar að ég var um síðustu helgi á akranesi að læra BTW fyrir
komandi 5 próf sem ég átti eftir.. þá fékk ég sms : þú ert að vinna
á morgun klukkan átta.. og ég bara .. what!! Og fékk því breytt
strax..því að ekki gat ég komið í miðjum lærdómi til að vinna..
-í öðrulagi .. : þá var ég búin að ræða við konuna sem ég er að
þjálfa við um það hvernig næsta haust yrði .. hvort að ég gæti
verið að þjálfa (aðalþjálfari eða aðstoðar) og svona og ég sagði
bara já auðvitað J
svo bara gleymdist það og við héldum
áfram að þjálfa. Svo einn góðann veðurdag þá sagði hún mér að
hún væri að fara á fund hjá unglingaráðinu og hvort að hún
ætti að skrifa það niður á svona umsóknarblað fyrir þjálfara
fyrir næsta haust og ég bara uuu.. já!! En ég var búin að fá
tilboð frá íþróttafélagi KR um að þjálfa 5. fl. Kvk og
aðstoðaþjáfari 6. fl. Kvk og auðvitað sagði ég henni það ..
þetta er félag sem ég ólst upp í frá því að ég var 6 ára og
til 16 ára aldurs .. sem sagt 10 ár. Mér dytti ekki í hug að
fara frá þessu félagi án þess að athuga hvað mér væri
bjóðandi hér, hvað ég fengi og hvað ekki. Ég held að flestir
íR ingar viti svona nokkurn vegin hver ég er og einnig
stuðningsmenn .. (þetta er ég ekki bara að segja til að
virðast vera eitthvað stórt nafn í þessu félagi en svona
líður mér um mig. Þegar að ég mæti íR ingum á förnum vegi þá
veit ég ekki betur en að ég heilsi þessu fólki.. ég allavegna
heilsa ekki fólki sem ég þekki ekki en .. æjji ég veit ekki
kannski er þetta bara eitthvað rugl) en já.. svo í framhaldi
af því fór ég á æfingu í gær að þjálfa og svona .. hafa
gaman. Þegar að ég mætti í bergið sá ég hana Jónu sem er í
unglingaráðinu og ég fór að ræða við hana um þjálfarastörf,
þá sagði hún mér að Kristín hafði sagt við hana að ég væri
bara farin úr þessu félagi og beint í KR. Það er eitthvað sem
ég myndi aldrei gera. Sérstaklega ekki áður en að ég væri
búin að athuga mína möguleika hjá ÍR. En þar sem að ekki var
sagt satt frá byrjun þá hef ég ekkert að gera í þessu félagi
lengur.. þannig að ég er örugglega farin til KR. Og mikill
andskoti er ég að fara að sýna hvað í mér býr sem þjálfari og
ég ætla að drita feitt yfir þetta lið. Sýna hverju þau eru að
missa af..
í gær þá var haldið hérna smá afmæli hjá Karen litlu systir, ég
kom ýkt fúl í þetta afmæli og það sást alveg rosalega vel.. en ég
get alveg sagt það að þetta fólk sem í afmælinu var, var alveg
sammála mér um það hversu ömurlega var komið fram við mig.. ég hélt
að reiðin ætlaði aldrei af mér að renna...
en eftir smá stund í afmælinu gafst ég upp og fór til Kristínar
Köru og tók Önnu Lilju með mér.. við fórum í smá göngutúr. Þegar að
ég kom heim þá var ég að blanda geði við fókið þar til að flestir
voru farnir .. þá fórum við Eva litla sys að kaupa okkur ís.. eftir
ísinn lá okkar leið á
Garðheimaplanið .. og þar fékk Eva litla sys að KEYRA!! Djöfulli er
ég góð systir!!
Hitti Daníel frændda og svona.. alltaf þegar að við hittumst er
mikið fjör og mikill hlátur.. þannig að þetta var mjög gaman 
Dagurinn í dag..
vaknaði seint og síðar meir.. um klukkan 10 .. þá fór ég upp og
fékk mér að borða og svona.. fór að undirbúa mig fyrir leikinn
LIVERPOOL- west ham ... auðvitað vann Liverpool eftir framlengingu
og vítaspyrnu ..
en núna ætla ég að fara og skemmta fólkinu hérna heima..
kveðja Kollz.. btw! komin í sumarfrí!!
»
25.04.2006 09:23:04 / kollz
*~°Ég veit ekkert hvað ég er að segja
hérna.. mér leiðist ekkert smá mikið hérna!! er að RoTnA í
íslensku ..
Ég ætla samt
að byrja á því að óska Heiðu pæju vinkonu innilegrar hamingjuóska á
18 ára afmælisdegi sínum.. já kellingin er orðin 18
ára..!:*
:* til
hamingju Heiða mín.. !! :*
:* og djöfulli get ég ekki beðið eftir því að föstudagurinn komi!!
Ég
er að deyja!!
Í gær fór ég í sund með henni Árdísi frænku.. það var nú reyndar
svona solið flýti sundferð.. því að ég var að fara að þjálfa
klukkan 16:30og mættum við aðeins of seint.. en hverju skiptir það ..
2 mín.. það var allt í lagi
.. en svona á ekki að koma fyrir aftur..þetta var voða ómerkileg
frétt... en þannig eru mínarsögur.. mJÖÖÖG!! ómerkilegar..!!
en ykkur finnst það bara gaman ..
Yeah!! yOu LiKe It!!
PrÓfIn eru að BYRJA!! Og Shitt!! Ég er ekki að
fara að meika þau!! Ég þarf að
bæta mig og læra og læra.. en ég vona að ég nái allavegana
einhverju.. Ég var að heyra það að það
er bústaður helgina eftir próf!! Í Miðhúsaskógi.. !! OmG!!
Bara brjálað stuð .. og var Ásdís að panta bústaðinn og
þurfum við að borga bráðum.. en hvað um
það.. BúStAðUr er alltaf bÚsTaÐuR!!
veit ekki alveg hvort að ég gisti .. en ég
reyni!!
hAhAhAhA!!! Ég var einnig að
komast að því afhverju Sigga hatar mig svona mikið.. fyrir þá
sem ekki vita er Sigga að vinna með mér.. og hún hatar mig
meira en allt..
Fékk skýringu á þessu í gær.. og hún hljómar svona:
Ég geri allt á svo löngm tíma.. tala of
mikið, (kannast alveg við
það) og geri allt svo
illa..
OkIi oKiI.. ég kannski tala mikið .. en kommon ..
það mætti halda að ég væri einhver útlendingur eða eitthvað ..
þvílíkir fordómar!! Ég er ekki sátt.. hún hatar mig örugglega meira
en hún hatar Innflytjendur (ALLS ekki það sem ég
geri.. mér er sama um
innflytjendur og þeir mega koma til landsins ef að þeir eru
ekki með einhver læti.. annars er mér
sama) ég veit
samt ekkert hvað henni finnst um
innflytjendur!! Og má hún hafa sínar skoðanir.. en ekki sýna
mér þær svona rosalega
mikið
Svo var ÉG Kolbrún Jónsdóttir að
sækja um vinnu á HóTeL Reykholt eða eitthvað svoleiðis.. man
ekki alveg hvað það heitir .. og djöfulli vona ég að ég fái
vinnunna!!
jæja.. nú
kveð ég í bili..
endilega tjáið ykkur ef að þið viljið...
*~°kolla
kveður..!
»
19.04.2006 09:59:42 / kollz
»
14.04.2006 19:39:09 / kollz
Hvernig er hægt að koma svona fram við
manneskju?
Hittast og verða hrifin .. og koma svo svona andskoti illa fram við
manneskju!!
Hann hefur enga samvisku og eftirsjá!! Ég sagði honum hluti sem ég
hef engum sagt nema frænku minni .. hann notfærir sér aðstöðu sína
og núna hótar “kærasta” hans að kæra mig!
Ég talaði við hann áðan þegar að þessi æðislega “kærasta” hans var
ekki hjá honum og þá var hann ekkert nema lambið ljúfa og vissi að
hann hafði gert rangt og svo þegar að “kærasta” hans kemur aftur þá
er hann ekkert nema ömurlegur!!
Hann sagði henni ekki að við hefðum hisst!! Hann laug öllu að
öllum... og hún vill ekki trúa því sem ég segi því að hann er víst
svona rosalega æðislegur!!
Hann sagði henni að
ég hefði bara séð hann á mynd.. hey.. þá hefði ég ekki verið svona
hrifin af honum..!! ekki af mynd.. það var hann sem gekk lengra!!
Hann bað um allt..! og þorði varla neinu ..
Ég lagðist næstum því í þunglyndi eftir þau .. en neitaði því ..
ég sagðist ætla að verða sterkari en þunglyndið en ég var þó
niðurdregin en ekki þunglynd.. ég sagði honum allt.. en drengurinn
hefur enga eftir sjá!!
vona bara að þeim gangi sem “allra”best í þessu sambandi ..
»
14.04.2006 01:31:59 / kollz
Eina stundina líður manni bara
venjulega og svo aðra hræðilega.. svo gerast frábærir
hlutir.. manni fer að líða vel.. eilega allt of vel.. og fólk
fer að spurja mann hvað sé svona frábært því það skín af
manni ánægjan..
Núna undan farnar vikur hefur mér liðið ótrúlega vel.. síbrosandi
og allir ánægðir í kringum mann.. en öllu góðu fylgir nú oftast
eitthvað illt...
Illt? Kannski ekki .. en hlutir geta ekki verið endalaust góðir..
auðvitað kemur eitthvað sem breytir ánægjunni ..
Lítil og auðsæranleg... já það þarf alveg rosalega lítið til að
særa mann.. eða allavegana mig.. ég veit ekki með ykkur..
Mér þykir ótrúlega vænt um ykkur.. sérstaklega þig..
tilfinningasveiflan Kolla, kveður..
»
31.03.2006 19:54:23 / kollz
Ömurlegt!!!!
Hvað
þarf til að koma uppá mili vinskapar?
Núna var ég örugglega að missa eina bestu vinkonu mína út af
einhverju rugli ..
Maður má ekki segja neitt án þess að það fari beint út í allann
heiminn!! Including me!!
Ég kann ekki að þegja og auðvitað bitnar það á öllum i kringum
mann.. sem sagt mér og vinkonnu minni.. og örugglega þeirru þriðju
líka..
Ég vil alls ekki missa þær en þegar að maður fær símtal sem
byrjar: (öskrandi) ERTU ÞROSKAHEFT!!! Og þá er verið að meina það
..
Þá fer maður að hugsa.. er vinskapurinn vrikilega þess virði að
láta öskra á sig og fá varla að útskýra mál sitt.. og svo er skellt
á mann og sagt: ÞETTA ER GLATAÐ!!
Vorkunn; nei takk.. alls ekki .. ég hata þegar að fólk vorkennir
mér...
En ég spyr.. hvað finnst ykkur vera ástæða fyrir því að bestu
vinkonur hætti að tala saman??
En akkúrat núna er mér bara hugsað til allra þeirra góðu stunda sem
við áttum..
Ef að við hittumst þá var alltaf hlegið ..
Bílarnir voru teknir í gegn.. þar að segja plastaðir.. rjómaðir og
fleira..
Allir ís-rúntarnir okkar í ísbúðina hennar..
ALLAR PÆLINGARNAR okkar..
Framtíðarplönin okkar..
Ein átti að verða rík á mjög auðveldann hátt.. og eiga ótrulega
marga og ríka vini .. Ég eins og Monica í friends.. og hún svo í
bílskúrnum okkar.. þetta fannt okkur voða gaman .. töluðum
STANSLAUST um þetta.. og hvað við ætluðum alltaf að vera góðar
vinkonur..
ALLT!!
En núna eru það bara tár..
Allt farið í vaskinn og skiptir örugglega engu máli lengur..
bæ bæ ..
»
28.03.2006 08:48:37 / kollz
Ég
hef víst gleymt að blogg í smá tíma.. en ég er semsagt á lífi ..
þó að ég sé að farast úr stressi og tilhlökkun...
Ástæður:
~ 28. mars: er að fara
með stelpurnar mínar sem ég er að þjálfa að keppa æfingaleik við FH
í Austurbergi
~ 29. mars: er að fara
að keppa með Val í handbolta.... STRESS!!!!
~ 31. mars: er að
fara með stelpurnar mínar sem ég er að þjálfa að keppa æfingaleik
við KR í Hagaskóla
~ 06. apríl: er að
fara til eyja með stelpurnar mínar að keppa.. bara stuð...!!
en annars sit ég bara í íslensku að hlusta á mismun mállýskna á
Íslandi.. svaka mikið fjör..
Vá ég veit ekkert hvað ég á að segja.. ég er bara alveg orðlaus..
öfundsýkin að drepa mann.. og fleira og fleira..
Það kemur vonandi betra blogg eftir kannski 2-3 daga.. bíðið
bara.. kemur örugglega rosadúndur blogg...
...ekki samt búast við því 
*~°gleymskan er hætt núna 
»
22.03.2006 17:40:09 / kollz
Jæja... kannski kominn tími á nýtt blog..
þetta blogg er örugglega soldið niðurdrepandi .. en þetta er það
sem ég hugsa um núna, svo ef að þið viljið lesa þá megiði bara vera
hérna inná síðunni eða bara fara á aðra eða eitthvað..
Í dag varð ég alveg rosalega pirruð.. ég veit ekki afhverju en ég
bara fékk nóg af hlutunum.. bara öllu.. ég langar að fara af heiman
.. sem sagt flytja frá mömmu, fá stærra pláss í kringum mig..
einhvern vegin er ég svo viss um að ég myndi hugsa betur um allt..
fara að bera virðingu fyrir hlutunum.. því að ég þyrfti að hugsa um
mig sjálf og gera allt sjálf.. þvo, elda, taka til og bara allt..!
þannig ef að einhver veit um fína íbúð (herbergi, eldhús aðstöðu og
bað) þá má hann láta mig vita!!
Svo fór ég að pæla hvað mig langar til að skipta um skóla.. ég
nenni ekki að hugsa um skólagöngu núna en ég vil klára skólann.! Ég
vil klára skólann á 4 árum en það tekst ekki með þessu áfram
haldi!
Það eina sem mig langar að gera er að fara og stunda handboltann á
fullu, þjálfa og eitthvað sem tengist íþróttum! Það er það
eina!
Ég get ekki meira..! 
Í gær fékk ég að keppa minn fyrsta leik eftir aðeins 2 æfingar..
var ekki alveg að finna mig í fyrri-hálfleik og fékk skiptingu
eftir einhverjar 18 mínútur. Fór svo aftur inná á 7 mín
seinni-hálfleik.. og stóð það mjög vel, en á 15 mín vildi svo
skemmtilega til að ég fékk boltann í augað og það bólgnaði soldið
upp ... ég fór aftur inná eftir einhverjar 5 mín og stóð það ...
töpuðum samt fyrir góðu liði Fram með 3 mörkum..
Núna ætla ég að halda áfram mínu tilgangslausa lífi..
*~°Kolla.. hate it or love it!
»
16.03.2006 13:28:04 / kollz
Já ég veit ekki hvað
ég á að halda.. á þriðjudaginn fékk ég svona nemendaráðs miða
frá Bjössa nemó lúða og ég skráði mig á þennann blessaða miða..
dritaði niður nafn, kennitölu og símanúmer... og svo beið mín
ekkert nema að fá 20 undirskriftir..
Ég hélt að ég myndi deyja við að þurfa að ganga á milli fólks og
biðja það um að krota nafn sitt og kennitölu .. en í ljós kom að ég
þekki alveg 20 manns ef ekki fleiri i þessum blessaða skóla.. ég
náði þessu á einhverjum einum tíma eða svo á miðvikudeginum og
skilaði því svo inn bara strax eftir það.. og núna er eg komin með
smá bakþanka..
Get ég þetta?
Er ég nokkuð of feimin?
(þó að sumir vilja ekki játa það að ég sé eitthvað feimin en ég fæ
mín köst þegar að ég þarf að tala fyrir framan fullt af fólki sem
ég þekki ekki neitt en annars er eg ekki neitt feimin)
Hef ég tímann?
..og margar aðrar spurningar..
ég vona að ég hafi einhvern stuðning frá þessu blessaða fólki hér
í skólanum.. endilega tjáið ykkur um það hvort að ég ætti að láta
mig hafa þetta eður ei..
*~°Kollz is gone..
»
12.03.2006 21:20:17 / kollz
þvílík helgi maður.. það kemur nánara blogg um það líklegast á
morgun.. er of lúin tið að nenna því ..en akkúrat núna er ég að
passa og barnið ældi áðan.. og ég get ekki þrifið mína eigin ælu!!
shitt.. en ég ætla að gera mér eitthvað til skemmtunar á meðan að
ég er að passa... svo sem horfa á sjónvarpið.. hmm.. horfa á
sjónvarpið .. eða kannski vera aðeins í tölvunni.. ekki mikið val..
en jæja.. mí is át! kolla..!
»
Síður: 1 2 3
|
|